http://www.amx.is/fuglahvisl/11408/
Á ég að trúa því að nokkur maður sé svona vitlaus að hafa þessa skoðun? Þú þarft að gera þér grein fyrir því að menning er einmitt það sem fólk vill til að viðhalda menningu og þroskast sem þjóð á því sviði.
,,skera niður framlög til lista- og menningarmála. Ungir sjálfstæðismenn telja að það sé ekki hlutverk ríkisins að velja menningarafþreyingu fyrir landmenn - þeir séu færir um það sjálfir." Það hafa verið ráðstefnur síðastliðin 2 ár um menntamál í heimin og hverju skólakerfið sé að skila nú í dag eftir niðurskurði í listgreinum í skóla. Svarið er það að einstaklingarnir eru óhæfir, ekkert hugmyndarflug, engin sköpunargáfa sem er nauðsynlegt fyrir allar starfsgreinar hvort sem það eru prestar, pólitíkusar, listamenn, læknar og viðskiptafræðingar svo fátt eitt sé talið.
Auðvitað er það ríkissins að velja menningarafþreyjingu, erum við þjóðin ekki ríkið? Veit ekki betur en að Leikarar og tónlistarmenn vinna margir hjá stofnunum sem er í eigu Ríkisins ekki satt? Í eigu okkar landsmanna.
Það er nauðsynlegt að hafa eftirfarandi starfandi og veita styrki til uppvaxtar á listasviðinu listin og lífið helst í hendur, án listar væri heimurinn tómlegur? Hugsiði þetta til enda.
Bloggar | 13.11.2009 | 18:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Finnst ég alltaf þurfa að segja eitthvað en er alltaf jafn orðlaus af undrun.
Eða týni orðunum jafn óðum við að hlusta á suma rökræða rökræður sem meika engan veginn sens.
Við ætlumst til þess að þessir mannlegu séu ómannlegir og með ofurkrafta. Geti stöðvað tímann og unnið og barist við allt á ofurhraða, því í ofurlandi tekur ekkert tíma.
Eins og málin standa núna, allt í steik og sokkið í mykju.... það tekur tíma að greiða flókann, hreinsa mykjuna og veiða málin upp aftur, þá þarf að sjálfsögðu að laga þau því þau hljóta að lykta illa.
Bloggar | 13.7.2009 | 14:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þau virka ein að þessum heilu pörum í Hollywood. Eiga nægan pening og nóg pláss. Og geta ráðið sínum. Með því að taka skrefið eru þau að sýna að það eru börn úti sem vantar hjálp. Aðrir sem að hafa kannski ekki hugsað út í þessa leið þarna úti þar sem að lítið er vitað um ættleiðingar utan USA í Bandaríkjunum.
Kannski eru þau að sýna að sama hvernig þau eru á litin eru þau fjölskylda liturinn skipti ekki máli, heldur hjartað...
|
Jolie vill barn frá Indlandi |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | 2.4.2009 | 01:57 (breytt kl. 01:57) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Jahérna er það sem mér dettur fyrst í hug og svo spurningin um það hvort þessi kona sé hæf til að stjórna skóla og taka á svona málum. Auðvitað og það bara skýrir sig.... með þessum slag að eitthvað hefur gengið á í einhvern tíma.... það hlýtur hver að sjá það.
Henni þóttu heldur ekki slagsmálin hrottaleg... en að sjálfsögðu eru þau það þegar einn heldur meðan annar níðist og ef tennur losna og tímabundin heyrn tapast þá eru þetta meira en bara alvarleg slagsmál.
Er þetta nokkuð frændi hennar sem réðst á þennan dreng?
|
Blóðug slagsmál skóladrengja |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | 2.3.2009 | 23:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Hvað með þá sem veltast blindfullir um bæinn um helgar, mígandi utan í hús og bíla, ibbandi gogg við mann og annan, má það fólk sjást í idol?
Brennívín er jú löglegt fíkniefni og við íslendingar kunnum nú ekki að nota það er það? Það er að drekka til að verða fullt? drekka vegna áhrifanna... til að hafa kjark til að vera það sem það vill vera. Til að geta talað við sæta strákinn eða sætu stelpuna sem að það þorir ekki að tala við edrú.
Drekka til að skemmta sér? kann fólk bara ekki að skemmta sér lengur....
Það er ekki bara einn þekktur hér á landi sem hefur fallið fyrir fíkninni? hvað með tollvörðinn, lögreglumanninn. lögmanninn. bankamanninn, þingmanninn hvað bíddu er þessi nafngreindi í fréttinni bara alveg sér á parti? Voðalega tekur fólk þetta nærri sér. Einhverjum hlut sem að kemur þeim bara gjörsamlega ekkert við.
Viljið ekki að börnin ykkar líti á hann sem goð hvað með hina? Það ætti þá að sjá að já hann hefur komist yfir fíknina, svarar af hreinskilni og er algjörlega hann sjálfur.
Hann á nú allt það besta skilið þessi drengur. Hann er klár og flottur tónlistarmaður. Hann er góður maður og allt í lagi að börn okkar sjái hann sem goð. Hann er ekkert frábrugðinn þér...
Bloggar | 19.2.2009 | 01:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Hvað með okkur þjóðina?...... við teljum að okkur sé ógnað........... hagsmunum okkar er ógnað, framtíð okkar og barnanna okkar er ógnað...... og hverjar eru ástæður þess? tjahh maður spyr sig.
Alþingishúsið, garðbekkirnir, bíll forsetisráðherra........ eru þetta ekki eigur okkar almennings?
Erum það ekki við sem borgum himinhá laun þeirra alþingismanna, og bankamanna sem hafa svívirt okkur þjóðina......
Heyrði viðtal við Björn Bjarnason í útvarpinu í hádeginu og mér blöskraði... Við búum á Íslandi, við erum rétt yfir þrjúhundruð þúsund....... Þurfum við óeirðarlöggu????? sem telja sig svo valdamikla, og yfir aðra hafnir.... hvernig væri að hugsa sig um, leggja siðblindnina, valdagræðgina, stoltið, heimskuna, peningagræðgina. og hlusta á almenning.....
afhverju ætli það sé að svona mikið af fólki safnist saman fyrir framan Alþingi, sem er notað fyrir fundi þingmanna til að gæta og vernda hagsmuni landsmanna....... hmmm hugsum málið.
Það er varla þarna af gamni sínu því að þingmennirnir eru svo myndarlegir, og fundirnir skemmtilegir. Það er varla þarna fyrir veðrið.
Það er þarna því að það er komið með nóg af skrílslátunum sem fara fram í alþingishúsinu. Húsinu okkar. Það er fyrir okkur hin sem að komust ekki til að láta í ljós reiði okkar...
Vanhæf ríkistjórn........... vanhæf ríkisstjórn..........
Kosningar NÚNA.
´´´´´´´´´´´´´´´´´´´´´´´´´´´´´´´´´´´´´´´´´´´´´´´´´´´´´´´´´´´´´´´´´´´´´´´´´´´´´´´´´´´´´´´´´´
|
Geir taldi sér ógnað |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | 21.1.2009 | 16:45 (breytt kl. 16:49) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Í gærmorgun var ég vöknuð snemma og tilbúin að mæta í skólann þrátt fyrir þreytu og svefnleysi. En ég var ss með yngsta afsprengilinn á FSA eftir að hafa skollið á gólfið og hlotið heilahristing. Svo seinustu 3 sólarhringa voru þar 5 tímar sem fóru í svefn í heildina.
En já allavega í gærmorgun þá var ég vöknuð snemma og tilbúin og spennt fyrir að fara í skólann aftur þar sem ég missti af fyrsta kennsludeginum vegna þess ofan greinda. Ég fer inn á bað og líður eitthvað skringilega en held áfram að klára að taka mig til en svo líður yfir mig.......
Hvort það hafi verið þreyta, spenna, pestin , eða hvort að kreppan hafi hreinlega borið mig yfirliði. Allavega var ég rúmföst í gærdag. Alveg frá í mallakútnum og óskaði þess ekker heitar en að geta sofið þessa verki og vanlíðan af mér.
Svo byrjaði skólinn í dag.... hjá mér :) fer aftur eftir smá þegar minn heitt elskaði kemur tilbaka úr leikskóla skutl ferð. Stelpurnar eru heima í dag. Og standa hér fyrir framan mig með tvær bækur og virðast vera að rökræða myndirnar. Afar krúttlegar.
En ég vildi bara óska ykkur gleðilegs nýs árs. Og láta umheiminn vita að ég sé á lífi.
Ákvað að koma ekki hér inn um daginn og blogga um visst atvik, þar sem ég var of undrandi og hneyksluð á framkomu bræðra. Slík hortugheit, og siðblinda, hjá mönnum sem eru í mikilvægum stöðum í þjóðfélaginu. Minni á blogg Láru Hönnu......
En eigið þið góða helgi og gleðilega, Ég mun hafa fleira að segja fljótlega þar sem að nýja árið er fullt af ævintýrum.
Bloggar | 9.1.2009 | 11:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Við þurfum að kenna börnunum okkar betri íslensku svo þau geti barist í orðum og sleppt því að nota hnefana.
Þetta er nú ekkert í fyrsta sinn sem að unglingur er barinn eða í fyrsta sinn sem að hnefar íslenskra unglinga og táfýlu tásur hafi verið notaðar í barsmíðar..... Þetta hefur lengi varað í samfélaginu okkar en foreldrar sem og samfélagið of blint.
Það þarf að halda umræðunni um einelti uppi.... og koma inn fræðslu um ofbeldi og afleiðingar í grunnskóla....
Hvernig væri að taka inn kúrs í alla grunnskóla sem þjappaði hópinn, opnaði augun þeirra fyrir ábyrgð og skynsemi. Kannski taka þátt í verkefnum og fá smá ábyrgð...
Með einhverri hugmyndavinnu er hægt að finna úrlausnir og hjálpa ungviðunum í þessu lífsströggli sem allir unglingar ganga í gegnum, að reyna að finna sig og samþykki einhversstaðar.
|
Grímuklæddir menn sitja um heimili hjá saklausum pilti |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | 27.11.2008 | 02:00 (breytt kl. 02:03) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég er komin með grænar bólur og fjólubláan niðurgang af öllu þessu krepputali....
Þeir sem að tala fyrir hönd almennings og stjórna landinu........ þurfa að fara að tala hreint út.
Allavega þá er lítið eftir af skólanum, mæting á mán og þri skil á 1 lokaritgerð og klára að líma og kartonera hönnunarverkefnin út frá þemanu sem er lokaverkefnið og svo er ég og mi familia farin suður í borg ljósanna.
Hér úti er allt á kafi í snjó og byrjað er að skreyta bæjinn með jólaljósum sem hlýja og birta upp skammdegið svo maður er farinn að finna fyrir því að það fari nú að styttast í jólin 
Hlakka til að fara að föndra og gera fínt og baka með krökkunum og syngja jólalög.
Svo get ég varla beðið eftir að byrja nýja önn í skólanum..... ég hlýt að vera orðin eitthvað veik.
Bloggar | 21.11.2008 | 22:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
þessi kreppa, krippa, kreppa, liggur þungt á fólki og held ég að við séum í þann veginn að vera búin að fá nóg af innihaldslausum útskýringum. og ónægum upplýsingum.
Allsstaðar er þetta í fréttunum daginn út og inn, á öllum vefum og maður kemst ekki hjá því að hugsa um þetta þar sem að ´maður er verulega farinn að finna fyrir því.
Minn heitt elskaði missti vinnuna............. fyrirtækið gjaldþrota og fékk ekki greitt fyrir seinasta mánuð.... er búin að þvælast um hvippinn og hvappin að afla sér upplýsinga en hér kann enginn neitt. Fólkið þarna kann ekki á þetta þar sem það hefur ekki þurft að takast á við þetta áður.
Fjölskyldudeild á ekki lausan tíma fyrir 25 nóv...... atvinnuleysisbæturnar kikka ekki inn fyrr en mánaðarmót des- jan þar sem að fyrirtækið varð gjaldþrota í nýjum mánuði.
Við eigum ekki í okkur og á...... erum föst í leiguhúsnæði sem við getum ekki borgað leiguna á þar sem að hún hefur hækkað úr 117 þús í 126-7 þús frá júlí..... (íbúðin er 3 herb frekar lítil og við erum að kafna hérna. Þetta er ekkert annað en peningasóun enda íbúðin þrátt fyrir að vera glæný, illa frágengin á allan hátt)
veit ekki hvernig við ætlum að gera þetta........
Jólin hjá okkur snúast um kærleik og samveru, pakkar verða í lágmarki og engin jólakort í ár nema kannski rafræn:)
Enda er mun notalegra að fá góðan mat, hlusta á fallega tónlist, njóta tímans sama og spila :) hitt er aukaatriði.
Við þurfum að vera gjafmildari á brosin okkar því að þau eru dýrmæt og alveg ókeypis.....
Minna fólkið okkar á hversu mikilvægt það er okkur, og hversu okkur þykir vænt um það.
Gefum börnunum okkar tíma, þolinmæði, kærleik og hlýju, það gefur margfalt tilbaka og kostar ekker nema gleði.
Nýtum gömlu fötin breytum þeim og bætum, það er innihaldið sem skiptir máli en ekki umbúðirnar.....
Annars er skuggalega lítið eftir af skólanum. Mér gengur bara rosalega vel og finnst þetta bara algjörlega æðislegt. Og er með jákvætt viðhorf gagnvart komandi ári og stefni á það að halda ótrauð áfram í æðislegheitunum og brosa og knúsa og elska. Það er eitthvað sem ég á nóg af og verð ekki uppiskroppa með.....
Bloggar | 9.11.2008 | 02:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Tónlistin mín
| Mars 2010 | ||||||
| S | M | Þ | M | F | F | L |
|---|---|---|---|---|---|---|
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | |
| 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
| 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
| 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
| 28 | 29 | 30 | 31 | |||
Tenglar
kvikmyndir
Afsprenglar
andlegir og andlausir
- Mitt pláss
- Sandy
- Berglins
- Biggi Kidfoot
- Heidi Brown
- Sveinar
- Goldie ex- locks
- Drési og co
- Sævar
- Thelma
- Lísbet
- Saran
- Raggzy
Ég
Bloggvinir
-
lillagud
-
brjann
-
eddabjo
-
bergruniris
-
ingibjhin
-
gudnim
-
dofri
-
beggipopp
-
ugla
-
atlifannar
-
gummisteingrims
-
hlynurh
-
ea
-
eirikurbergmann
-
thelmaasdisar
-
almaogfreyja
-
gilsneggerz
-
manzana
-
biggibix
-
olafurbj
-
vigniro
-
dita
-
joik7
-
larusg
-
eythora
-
gretarorvars
-
judas
-
fitubolla
-
malacai
-
bestalitla
-
lostintime
-
fridrikomar
-
ylfalind
-
komaso
-
kollajons
-
eggmann
-
kittysveins
-
sax
-
birnarebekka
-
ragnhildur
-
gurrihar
-
poppoli
-
id
-
jonaa
-
ulfarsson
-
alla
-
aslaugosk
-
beggita
-
gattin
-
frida-litlah
-
guffaluff
-
vglilja
-
gudmundurhelgi
-
gullilitli
-
gunnhildur
-
drum
-
hjordiz
-
johannavala
-
stjaniloga
-
margretsverris
-
omarragnarsson
-
sandradogg
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.3.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 16
- Frá upphafi: 19479
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar



